Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Tvær kannabisaræktanir, lyf og skjaldbökur
Mánudagur 22. desember 2014 kl. 10:53

Tvær kannabisaræktanir, lyf og skjaldbökur

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði nýverið tvær kannabisræktanir sem karlmaður á fertugsaldri er grunaður um aðild að. Einnig  voru haldlögð kannabisefni í pakkningum, sveppir, lyf, poki með hvítu efni og tvær skjaldbökur.

Lögreglumenn stöðvuðu í upphafi akstur mannsins og reyndist hann vera með útrunnin ökuréttindi. Hann var að auki eftirlýstur. Hann gaf þvagsýni á lögreglustöð sem staðfesti neyslu hans á amfetamíni, metamfetamíni og kannabis. Við leit í bifreið hans fannst meðal annars lítil vog með leifum af hvítu efni og kannabis.

Við húsleit í iðnaðarbili sem maðurinn hafði til umráða fannst kannabisræktun falin inni á milli nóta, kaðla og fiskineta. Á heimili hans fannst önnur kannabisræktun, kannabisefnin, sveppirnir, lyfin, hvíta efnið og skjaldbökurnar. Meindýraeyðir frá Hafnarfjarðarbæ fjarlægði þær.

Loks fannst falskt rými undir ísskáp þar sem meðal annars voru tvær glerkrukkur með meintum amfetamínleifum, kannabismyljari og fíkniefnaáhöld.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024