Fréttir

Tvær flugvélar frá British Airways lentu í Keflavík vegna reyks
Miðvikudagur 13. mars 2019 kl. 13:00

Tvær flugvélar frá British Airways lentu í Keflavík vegna reyks

Lenda þurfti tveimur flugvélum frá British Airways á Keflavíkurflugvelli um helgina vegna reyks í farþegarými. Önnur vélin var á leið frá London til New York með 167 farþega um borð. Var rauðu óvinnustigi lýst yfir. Flugstjórinn upplýsti svo að reykurinn hefði minnkað og lenti hann vélinni heilu og höldnu.

Í hinu tilvikinu, sem átti sér stað fáeinum mínútum síðar  var svo flugvél með á annað hundrað farþega um borð, sem var á leið frá London til Newark, lent. Reyndist reykurinn sem komið hafði upp í farþegarými hennar stafa af rafmagnsbilun. Þrír flugliðar kvörtuðu undan svima og ógleði og voru þeir fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Vélinni var ekki flogið áfram heldur fengin önnur vél til að ferja farþegana á áfangastað.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024