Tuttugu vilja bæjarstjórastólinn í Grindavík
Alls bárustu 20 umsóknir um stöðu bæjarstjóra Grindavíkurbæjar, en umsóknarfrestur um starfið var til 11. júlí. Bæjarráð fór yfir málið á fundi sínum í gær og mun vinna málið áfram í samvinnu við ráðninga- og ráðgjafafyrirtæki Hagvang sem heldur utan um ferlið. Lista yfir umsækjendur má sjá hér að neðan. Greint er frá þessu á Grindavik.is.
Umsækjendur í stafrófsröð:
Anna Greta Ólafsdóttir - Stofnandi og sérfræðingur stjórnendalausna
Ármann Jóhannesson - Ráðgjafi
Áróra Jóhannsdóttir - Eigandi / sölumaður
Baldur Þ. Guðmundsson - Útibússtjóri
Bjarni Óskar Halldórsson - Framkvæmdastjóri
Björn Ingi Jónsson - Bæjarstjóri
Fannar Jónasson - Bæjarstjóri
Guðrún Pálsdóttir - Verkefnastjóri
Gunnar Bjornsson - Forseti í fullu starfi / verkefnastjóri
Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir - Nefndarmaður
Matthias Magnusson - Framkvæmdastjóri
Ólafur Örn Ólafsson - Fv. bæjarstjóri
Ómar Smári Ármannsson - Aðstoðaryfirlögregluþjónn
Rebekka Hilmarsdóttir - Lögfræðingur/Staðgengill skrifstofustjóra
Regina Fanny Gudmundsdóttir - Deildarstjóri reikningshalds
Sveinbjörn Freyr Arnaldsson - Framkvæmdastjóri
Valdimar Leó Friðriksson - Framkvæmdastjóri
Þórður Valdimarsson - Verkefnastjóri
Þorsteinn Gunnarsson - Sveitarstjóri
Þórunn Inga Ingjaldsdóttir - Framkvæmdastjóri íþróttasviðs