Bygg
Bygg

Fréttir

Tuttugu stunda nám á flugþjónustubraut
Fimmtudagur 27. janúar 2005 kl. 14:18

Tuttugu stunda nám á flugþjónustubraut

Tuttugu nemendur stunda nám á flugþjónustubraut Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Kennsla hófst þann 6. Janúar en í samstarfi við Flugþjónustuna ehf. (IGS) í Flugstöð Leifs Eiríkssonar bíður Fjölbrautaskóli Suðurnesja upp á starfsnámsbraut sem undirbýr nemendur fyrir vinnu við innritun og alla almenna þjónustu við flugfarþega.

Hildur Bæringsdóttir umsjónarkennari á flugþjónustubraut segir námsbrautina byggjast upp á 7 áföngum upp á samtals 19 einingar. „Það er fyrir utan starfsþjálfunina hjá IGS. Þessir áfangar eru kenndir fyrstu 10 vikurnar, eða fram að páskum, að mestu í FS. Námið fer fram í dagskóla milli kl. 8:00 og 14:10. Starfsþjálfunin fer fram á vöktum hjá IGS og stendur yfir í þrjár vikur og er metin til 4 eininga. Nemendur ljúka því námi 12. apríl. Þeir sem standast kröfur skólans um lágmarkseinkunn útskrifast með starfsréttindi í farþegaþjónustu," segir Hildur en alls sóttu 36 nemendur um nám á brautinni.
Til að komast í nám á flugþjónustubraut FS þurfa umsækjendur að hafa náð 20 ára aldri og hafi lokið 3 ára framhaldsnámi. Umsækjendur 25 ára og eldri með víðtæka reynslu eru einnig hvattir til þess að sækja um, þó almennum forkröfum sé ekki fullnægt.

Áfangarnir sem kenndir eru á flugþjónustubraut eru: Farþegaþjónusta 103, Innritunar-, bókunar- og farangursleitarkerfi 103 (Star chek, Amadeus og World Tracer), Ferðalandafræði Íslands 102, Ferðalandafræði útlanda 102, Fyrirtækjafræði 102, Þjónusta og samskipti 102 og Skyndihjálp 101.
Nánari upplýsingar um áfangana er að finna á heimasíðu skólans, www.fss.is.


Tvímælalaust grundvöllur fyrir auknu námsframboði í ferðaþjónustu á svæðinu
-segir Hildur Bæringsdóttir umsjónarkennari flugþjónustubrautar FS

Hildur Bæringsdóttir er viðskiptafræðingur, B.Sc. frá Háskóla Íslands og með kennsluréttindi frá Kennaraháskólanum. Hún hefur kennt viðskiptagreinar og stærðfræði hjá Fjölbrautaskóla Suðurnesja frá haustönn 2002. Áður starfaði Hildur á fræðsludeild Iðntæknistofnunar, söludeild Eimskips og sölu- og markaðsdeild Vífilfells. Síðasta sumar starfaði hún í farþegaþjónustu IGS til að fá innsýn í það starf sem fluþjónustubrautin undirbýr nemendur fyrir. „Mér fannst starfið mjög skemmtilegt og lærdómsríkt. Reynslan í starfinu mun án efa nýtast mér í framtíðinni."

Finnst þér skipta miklu máli að það sé boðið upp á þetta nám á Suðurnesjum?
Já, það gerir það. Þetta er spurning um að sýna frumkvæði og sjá tækifærin sem felast í aukinni umferð ferðamanna í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Ef við í FS gerum það ekki þá gerir einhver annar það. Það er bara svo einfalt.

Er grundvöllur fyrir því að auka námsframboð í ferðaþjónustu á svæðinu?
Já tvímælalaust. Í ljósi þess að farþegafjöldi um keflavíkurflugvöll muni tvöfaldast á næstu tíu árum, skv. spá breska fyrirtækisins BAA plc., er augljóst að krafan eftir hæfu starfsfólki muni aukast.

Hvernig sérðu ferðaþjónustu á svæðinu fyrir þér í framtíðinni?
Stórt er spurt. Það eru mörg tækifæri hér á Suðurnesjum varðandi uppbyggingu ferðaþjónustu. Ég er nýflutt í Reykjanesbæ og hef fylgst vel með því sem er að gerast hér í uppbyggingu á bænum. Aðlaðandi bæjarfélag laðar að sér fólk með hugmyndir að atvinnurekstri. Hugmyndir um víkingaheim á Fitjum og svæðið þar í kring hefur einnig mikla möguleika á að ferðamenn staldri við. Tækifæri skapast þá fyrir verslun og þjónusta við hæfi á því svæði. Einnig hef ég séð teikningar af þjónustusvæði fyrir Flugstöðina fyrir ofan Iðavelli ásamt stækkun Flugstöðvarinnar. Við Íslendingar erum frumkvöðlar í eðli okkar og við þurfum bara að vera vakandi fyrir tækifærunum. Öll bæjarfélögin á svæðinu, ekki bara Reykjanesbær, heldur líka Sandgerði, Garður, Vogar og Grindavík þurfa að standa saman að skipulagi slíkrar uppbyggingar.

Hefur þú mikinn áhuga á ferðamálum?
Ég hef gríðarlega mikinn áhuga á ferðamálum. Sjálfri finnst mér gaman að ferðast og hef farið víða. Ég ætlaði alltaf að fara í hótelstjórnun í Austurríki en viðskiptafræðin í HÍ varð fyrir valinu. Hver veit nema maður stofni ekki sjálfur ferðaþjónustufyrirtæki á svæðinu.

Hvernig hafa nemendurnir tekið brautinni?
Mér sýnist allir taka náminu vel. Nemendur eru áhugasamir og metnaðarfullir. Ég veit ekki hvað ég á að segja meira. Mér finnst allir svo jákvæðir gagnvart náminu. Sumir reyndar svolítið stressaðir fyrst. Sérstaklega þeir sem hafa ekki verið í skóla lengi. En núna þegar þeir hafa fengið kennsluáætlanir og hafa kynnst okkur kennurunum þá sjá þeir að við erum öll ljúf sem lamb þrátt fyrir kröfur um góða námsframmistöðu af hálfu nemenda.

Hafa kviknað góðar hugmyndir í tímum?
Skólinn er rétt nýbyrjaður en nemendur hafa verið mjög frjóir og hugmyndaríkir í þeim tímum sem ég hef kennt, þar sem ég byrjaði á því að fara í hugflæðisæfingar með þeim. Ég kenni þeim Fyrirtækjafræði 102 og þau byrjuðu á því að láta hugann reika um hvaða fyrirtæki væru í ferðaþjónustu. Síðan flokkuðum við þau niður í flokka, t.d. ferðaskrifstofur, gisting, samgöngur, afþreying. Nemendum var skipt í hópa og þau eiga að stofna sitt eigið fyrirtæki, eitt í hverjum flokki. Í áfanganum förum við síðan yfir þau atriði sem þurfa að koma fram í viðskiptaáætlun og hver hópur vinnur áætlun fyrir sitt fyrirtæki.

Hvernig er áhuginn fyrir næstu önn?
Brautin verður í boði næst á vorönn 2006. Ég veit um nokkra sem sóttu um núna en sáu sér ekki fært um að stunda námið að sinni. Þeir ætla að sækja um næsta vor. Að sjálfsögðu tekur skólinn við umsóknum fyrir næstu önn núna en skólinn mun auglýsa nánari umsóknarfrest síðar. Þeir sem hafa áhuga á náminu eru hvattir til að sækja um strax.

Flugþjónustan ehf. ánægð með námið
Ásdís Adolfsdóttir er þjónustustjóri farþegaþjónustu Flugþjónustunnar ehf. (IGS) á Keflavíkurflugvelli. Víkurfréttir spurðuð Ásdísi hvaða þýðingu nýja námsbrautin í FS hafi fyrir Flugþjónustuna?
„Þeir sem að standa að samstarfsverkefninu af hálfu Flugþjónustunnar (IGS) telja að námið hafi mikla þýðingu fyrir fyrirtækið og ekki síður almennt fyrir flugiðnaðinn í landinu. Að loknu þessu námi eru starfsmenn betur undirbúnir í byrjun starfsferils síns en þeir nýliðar sem við höfum ráðið fram að þessu. Kröfur um fagmennsku aukast jafnt og þétt og auðveldar þetta nám okkar fólki að uppfylla þær væntingar sem til þeirra eru gerðar. Öflugt og vel þjálfað starfsfólk hefur verið skilgreint sem eitt af lykilatriðum árangurs hjá fyrirtækinu og án efa mun námsbrautin hjálpa IGS við að ná settum markmiðum hvað varðar árangur og stefnu í starfsmannamálum. Einnig teljum við það viðurkenningu og mikinn gæðastimpil fyrir Flugþjónustuna (IGS) að nú sé boðið upp á viðurkennt nám sem byggt er á starfsemi fyrirtækisins."

Bílakjarninn
Bílakjarninn