Tuttugu störf við sjóvarnagarða í Reykjanesbæ og jarðvinnu í Helguvík
Um 20 starfsmenn Íslenskra aðalverktaka munu hafa atvinnu að gerð sjóvarnargarða og framkvæmdir við lóð fyrirhugaðrar stálpípuverksmiðju í Helguvík. Framkvæmdir hófust formlega í gær, eins og greint var frá hér á vef Víkurfrétta.Stefán Friðfinnsson, forstjóri ÍAV, og Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, skrifuðu í gær undir samning um verk sem felst í að sprengja út og fjarlægja klöpp á lóð fyrirhugaðrar stálpípuverksmiðju á hafnarsvæðinu í Helguvík og nota í sjóvarnargarða, en ÍAV voru lægstbjóðendur í verkið.
Um er að ræða lækkun á lóðarstæði um 15 til 20 metra með sprengingum og greftri. Fyllingarefni og grjót sem við það myndast verður flutt að strandlengju Keflavíkur og Njarðvíkur og nýtt við gerð sjóvarnargarða og landfyllinga. Verksamningurinn hljóðar upp á rúmlega 310 milljónir króna.
Starfsmenn ÍAV hafa þegar hafið framkvæmdir og munu um 20 manns vinna við verkið. Verkefnastjóri er Guðgeir Sigurjónsson og verkstjóri er Ágúst Ólafsson. Verklok eru áætluð 1. júní 2004.