Tuttugu sagt upp hjá Premium of Iceland
Premium of Iceland hefur sagt upp tuttugu starfsmönnum í fiskvinnslu sinni í Reykjanesbæ. Framkvæmdastjóri félagsins gagnrýnir synjun heilbrigðisnefndar Suðurnesja um skráningu starfseminnar og segir hana byggða á skilyrði sem sé hvergi í reglugerð.
Uppsagnirnar koma í kjölfar úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 24. september, að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu. Þar var kröfu þess hafnað um að fella úr gildi dagsektir sem heilbrigðisnefnd Suðurnesja hafði lagt á félagið. Þær nema 50 þúsund krónum á dag þar til starfsemin hefur verið stöðvuð.
Í upphafi árs störfuðu 38 manns hjá félaginu. Samkvæmt tilkynningunni hefur starfsfólki fækkað vegna aðgerða heilbrigðiseftirlitsins og óvissu um framtíð rekstrarins.
„Við hörmum þessa stöðu. Hér hefur fiskur verið unninn í áratugi, í húsi sem var byggt fyrir fiskvinnslu, og okkur er gert að loka á grundvelli skilyrðis sem hvergi stendur í reglugerðinni,“ segir Gylfi Þór Markússon, framkvæmdastjóri Premium of Iceland.
Deilt um skráningu starfseminnar
Fiskvinnslan er að Brekkustíg 22–24, þar sem fiskur hefur verið unninn í áratugi að sögn félagsins. Heilbrigðisnefnd Suðurnesja synjaði um skráningu starfseminnar í desember 2025. Samkvæmt tilkynningunni byggðist synjunin á umsögn skipulagsfulltrúa Reykjanesbæjar um að fiskvinnsla samræmdist ekki aðalskipulagi. Í maí síðastliðnum voru lagðar á dagsektir og þess krafist að starfseminni yrði hætt.
Félagið telur synjunina ekki eiga sér stoð í reglugerð nr. 830/2022. Það segir fiskvinnslu skráningarskylda og að skilyrði reglugerðarinnar um húsnæði lúti að samþykktri notkun þess. Húsið sé skráð sem iðnaðarhúsnæði og uppfylli því skilyrðið að mati félagsins.
Gylfi gagnrýnir framgöngu nefndarinnar harðlega.
„Þetta er valdníðsla: nefndin tók sér skipulagsvald sem hún hefur ekki og byggði ákvörðun sína á kröfu sem á sér enga stoð í lögum.“
Úrskurðurinn frá 24. september snerist þó eingöngu um dagsektirnar, samkvæmt tilkynningunni. Úrskurðarnefndin tók ekki afstöðu til lögmætis synjunarinnar sjálfrar þar sem kærufrestur vegna hennar var liðinn.
„Úrskurðarnefndin tók ekki afstöðu til þess hvort synjunin væri lögmæt og við munum fá skorið úr því. Það sárasta er að þurfa að kveðja frábært starfsfólk. Margt af því hefur unnið í þessu húsi árum saman,“ segir Gylfi.
Telja fleiri fyrirtæki geta orðið fyrir áhrifum
Premium of Iceland segist hafa lagt fram sáttatillögu í júlí um skráningu til fimm ára gegn skuldbindandi áætlun um flutning starfseminnar. Félagið hafi jafnframt sótt um lóð við Njarðvíkurhöfn til framtíðaruppbyggingar.
Í tilkynningunni er því haldið fram að túlkun heilbrigðiseftirlitsins geti haft áhrif á fleiri fyrirtæki. Félagið segir fulltrúa eftirlitsins hafa nefnt á fundi að hún snerti 74 fyrirtæki í bæjarfélaginu. Það telur hundruð starfa og verðmæti iðnaðarhúsnæðis geta verið í húfi verði sömu túlkun beitt gagnvart þeim.
Félagið segir málareksturinn og óvissuna þegar hafa kostað það stóra samninga og orðið til þess að fjárfestar hafi horfið frá fyrirhugaðri uppbyggingu. Um 85 prósent framleiðslunnar fari á erlenda markaði, einkum til Frakklands.
Premium of Iceland hyggst sækja um skráningu að nýju hjá nýjum eftirlitsaðila eftir áramót, samkvæmt tilkynningunni. Fáist skráningin staðfest segist félagið vilja bjóða starfsfólki störf að nýju. Það áskilur sér jafnframt rétt til að krefjast bóta vegna tjónsins.
Hér er tilkynning fyrirtækisins í heild sinni:
Gert að loka fiskvinnslu á grundvelli skilyrðis sem hvergi stendur í reglugerð
20 starfsmönnum fiskvinnslu Premium of Iceland í Reykjanesbæ sagt upp
Premium of Iceland ehf. hefur sagt upp 20 starfsmönnum í fiskvinnslu sinni að Brekkustíg 22–24 í Reykjanesbæ. Í upphafi ársins störfuðu 38 manns hjá félaginu, en starfsfólki hefur fækkað jafnt og þétt vegna aðgerða heilbrigðiseftirlitsins og óvissunnar sem þær hafa skapað. Uppsagnirnar koma í kjölfar úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 24. september sl. Nefndin hafnaði þar kröfu félagsins um að dagsektir sem heilbrigðisnefnd Suðurnesja lagði á félagið yrðu felldar úr gildi. Dagsektirnar nema 50.000 kr. á dag þar til starfsemin hefur verið stöðvuð.
Í húsinu hefur verið rekin fiskvinnsla í áratugi. Það er byggt sem iðnaðarhúsnæði og skráð sem slíkt í fasteignaskrá. Heilbrigðisnefnd Suðurnesja synjaði engu að síður um skráningu starfseminnar í desember 2025. Synjunin byggðist á umsögn skipulagsfulltrúa Reykjanesbæjar um að fiskvinnsla samræmdist ekki aðalskipulagi. Í maí 2026 lagði nefndin á dagsektir og krafðist þess að starfseminni yrði hætt.
Úrskurðurinn snerist eingöngu um dagsektirnar. Nefndin tók fram að hún fjallaði ekki um lögmæti synjunarinnar sjálfrar, þar sem kærufrestur vegna hennar væri liðinn. Nefndin gerði athugasemd við málsmeðferð heilbrigðiseftirlitsins en taldi hana ekki hafa áhrif á gildi dagsektanna.
Skilyrði sem hvergi stendur í reglugerðinni
Fiskvinnsla er skráningarskyld samkvæmt reglugerð nr. 830/2022, ekki starfsleyfisskyld. Reglugerðin var sett til að einfalda stjórnsýsluna. Eina skilyrðið sem hún setur um húsnæðið er að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun þess. Samþykkt notkun hússins að Brekkustíg 22–24 er iðnaður, og það skilyrði er því uppfyllt.
Heilbrigðisnefndin synjaði þó ekki á þeim grunni. Hún synjaði vegna þess að starfsemin samræmdist ekki aðalskipulagi að mati skipulagsfulltrúa. Það skilyrði er hvergi að finna í reglugerðinni. Þar er heldur hvergi gert ráð fyrir umsögn skipulagsfulltrúa eða annars stjórnvalds, og fimm virkra daga afgreiðslufrestur reglugerðarinnar gefur ekkert svigrúm til að leita hennar. Nefndin bjó sér þannig til skilyrði sem reglugerðin setur ekki, aflaði umsagnar sem reglugerðin gerir ekki ráð fyrir og synjaði á grundvelli hennar.
Jafnvel þótt aðalskipulagið ætti við heimilar það áframhaldandi rekstur starfandi iðnaðar á miðsvæðum þar til deiliskipulag tekur gildi, og ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæðið. Í febrúar 2024 felldi úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála úr gildi sambærilega ákvörðun heilbrigðisnefndar Suðurnesja um fiskvinnslu á miðsvæði í Reykjanesbæ (mál nr. 124/2023). Eftirlitinu var því fullkunnugt um afstöðu nefndarinnar en hélt engu að síður óbreyttri framkvæmd gagnvart félaginu.
Heilbrigðisnefnd fer með hollustuhætti og mengunarvarnir, ekki skipulagsmál, og synjunin byggði hvorki á hollustuháttum né mengunarvörnum. Það er bæjarstjórnar að ákveða í deiliskipulagi hvaða starfsemi á heima á hverjum stað.
Félagið hefur engu að síður leitað sátta. Í júlí lagði það fram sáttatillögu: skráningu til fimm ára gegn skuldbindandi áætlun um flutning starfseminnar. Félagið hefur jafnframt sótt um lóð við Njarðvíkurhöfn undir framtíðaruppbyggingu. Heilbrigðiseftirlitið hélt málinu engu að síður til streitu.
Hundruð starfa undir
Málið varðar fleiri en Premium of Iceland. Á fundi með félaginu nefndi fulltrúi heilbrigðiseftirlitsins að túlkunin snerti 74 fyrirtæki í bæjarfélaginu. Flest standa þau á strandlengjunni frá Vatnsnesi að Njarðvíkurhöfn: gróin atvinnustarfsemi á svæði þar sem breytt landnotkun hefur verið boðuð en ekkert deiliskipulag gert. Fái sú túlkun að standa sem beitt var gegn félaginu, að atvinnustarfsemi fáist ekki skráð á svæðinu fyrr en deiliskipulag liggur fyrir, á hún við um þau öll.
Hjá aðeins þremur þessara fyrirtækja starfa um 130 manns, og hjá þeim öllum skipta störfin hundruðum. Fjöldi afleiddra starfa í þjónustu, flutningum og verslun á svæðinu er háður þeim. Samkvæmt túlkun heilbrigðisnefndarinnar gæti ekkert fyrirtækjanna skipt um rekstraraðila, og enginn eigandi gæti selt eða leigt húsnæði sitt til áframhaldandi atvinnurekstrar. Hver kaupir iðnaðarhúsnæði sem ekki má nota til iðnaðar? Verðmæti sem fólk hefur byggt upp á heilli starfsævi gætu orðið að engu með einni umsögn. Vita eigendur þessara fasteigna af því?
Áhrifin eru þegar farin að koma fram. Í næsta nágrenni félagsins er önnur fiskvinnsla, þar sem 8–10 manns starfa, sem árum saman hefur beðið skráningar og stendur nú frammi fyrir sömu stöðu.
Þetta er sú frétt sem enn hefur ekki verið sögð. Hvaða fyrirtæki eru þessi 74? Hversu mörg störf eru í húfi? Hver eru verðmætin sem eru undir? Og á hvaða lagastoð byggir túlkunin sem úrskurðarnefndin hefur þegar einu sinni hafnað? Heilbrigðiseftirlitið ætti að geta svarað fyrstu spurningunni. Félagið leggur fúslega fram þau gögn sem það hefur um málið.
„Við hörmum þessa stöðu. Hér hefur fiskur verið unninn í áratugi, í húsi sem var byggt fyrir fiskvinnslu, og okkur er gert að loka á grundvelli skilyrðis sem hvergi stendur í reglugerðinni. Þetta er valdníðsla: nefndin tók sér skipulagsvald sem hún hefur ekki og byggði ákvörðun sína á kröfu sem á sér enga stoð í lögum. Það er óásættanlegt að nefnd sem leggja á niður eftir þrjá mánuði geti farið svona fram, með þessum afleiðingum fyrir starfsfólkið og fyrir Reykjanesbæ,“ segir Gylfi Þór Markússon, framkvæmdastjóri Premium of Iceland. „Úrskurðarnefndin tók ekki afstöðu til þess hvort synjunin væri lögmæt, og við munum fá skorið úr því. Það sárasta er að þurfa að kveðja frábært starfsfólk. Margt af því hefur unnið í þessu húsi árum saman.“
Heilbrigðisnefnd Suðurnesja verður lögð niður um næstu áramót og eftirlitið fært til Umhverfis- og orkustofnunar. Félagið hyggst sækja um skráningu starfseminnar að nýju hjá nýjum eftirlitsaðila, í trausti þess að umsóknin verði afgreidd samkvæmt lögum og reglugerð en ekki eftir geðþótta. Fáist skráningin staðfest stendur vilji félagsins til að bjóða starfsfólki störf að nýju.
Premium of Iceland hefur á skömmum tíma náð eftirtektarverðum árangri í markaðssetningu íslenskra sjávarafurða erlendis, meðal annars á laxi. Um 85% framleiðslunnar fara úr landi, einkum til Frakklands. Málareksturinn og óvissan sem honum hefur fylgt hafa kostað félagið mjög stóra samninga. Með þeim stefndi í að störfum hjá félaginu fjölgaði í 60–70, en að jafnaði hafa um 40 manns starfað þar. Fjárfestar sem hugðust koma að félaginu með mikla uppbyggingu í huga hafa einnig horfið frá, beinlínis vegna þessa máls. Félagið áskilur sér allan rétt til að krefjast bóta vegna tjónsins, þar á meðal vegna uppsagna starfsfólksins.








