Fréttir

Tuttugu og fjórar fjölskyldur í Reykjanesbæ fá matarúttekt frá Krónunni fyrir jólin
Fimmtudagur 21. desember 2023 kl. 13:55

Tuttugu og fjórar fjölskyldur í Reykjanesbæ fá matarúttekt frá Krónunni fyrir jólin

Krónan hefur afhent Velferðarsviði Reykjanesbæjar 24 gjafakort sem safnað var fyrir í jólasöfnun Krónunnar á aðventunni. Þá bauðst viðskiptavinum að styrkja hjálparsamtök sem sjá um matarúthlutanir í sínu nærsamfélagi í aðdraganda jóla og jafnaði Krónan þá upphæð á móti. Viðskiptavinir Krónunnar í Reykjanesbæ, ásamt Krónunni söfnuðu því alls 480 þúsund krónum en samtals söfnuðust 12 milljónir króna í jólastyrkjasöfnun matvöruverslunarinnar um allt land.

„Markmið okkar fyrir þessi jól var að styrkja 500 fjölskyldur en í fyrra hlutu 450 fjölskyldur stuðning í formi matarúthlutana. Í samvinnu við okkar kæru viðskiptavini náðum við þessu markmiði og gott betur en 600 fjölskyldur fá matarúthlutun í ár vegna söfnunarinnar. Þetta er í fjórða sinn sem við bjóðum viðskiptavinum að láta gott af sér leiða á aðventunni og hefur ávallt verið tekið vel í þetta framtak. Jólamánuðurinn getur verið erfiður á mörgum heimilum og því er þetta samvinnuverkefni okkur afar mikilvægt,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Söfnunin fór þannig fram að viðskiptavinum bauðst að styrkja fyrir 500 krónur eða meira og Krónan jafnaði sömu upphæð á móti. Upphæðin rennur beint til hjálparsamtaka í nærsamfélagi sem styðja þau sem þurfa á mataraðstoð að halda fyrir jólin. Styrkirnir eru veittir í formi gjafakorta svo að styrkþegar geti sjálfir valið í sína matarkörfu fyrir hátíðirnar. 

Góðgerðarsamtökin sem hljóta styrki í formi gjafakorta frá viðskiptavinum og Krónunni í ár eru Velferðarsvið Reykjanesbæjar, Selfosskirkja, Sjóðurinn góði í Árnessýslu, Stórólfshvolskirkja, Rauðikross Víkursvæðis, Styrktarsjóður Landakirkju, Jólasjóður Fjarðabyggðar, Velferðarsjóður Eyjafjarðarsvæðis, Mæðrastyrksnefnd Akraness, Mæðrastyrksnefnd Kópavogi, Soroptimistaklúbbur Mosfellssveitar, Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar og Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur.

Bílakjarninn
Bílakjarninn