Turninn fór í tvennt
„Kirkjuturninn virðist vera stórskemmdur og eldingavarinn dugði ekki til. Mér sýnist eldingin hafa farið í gegnum turninn og brotið af honum toppinn“, segir Þórir Jónsson meðhjálpari og kirkjuvörður í Njarðvíkurkirkjum en turninn á Ytri Njarðvíkurkirkju brotnaði af í látunum í nótt.
„Stofnöryggið hjá okkur brann yfir en ég veit ekki enn hvernig er með hljóðkerfi, tölvukerfi og annað. Rafvirkjarnir eru að vinna í þessu“, sagði Þórir.
„Stofnöryggið hjá okkur brann yfir en ég veit ekki enn hvernig er með hljóðkerfi, tölvukerfi og annað. Rafvirkjarnir eru að vinna í þessu“, sagði Þórir.