Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Tugir mála vegna fíkniefna og peningaþvættis
Fimmtudagur 19. október 2023 kl. 09:08

Tugir mála vegna fíkniefna og peningaþvættis

Á síðasta ári rannsakaði lögreglan á Suðurnesjum sextíu og níu mál vegna smygls á fíkniefnum, peningaþvættis og flutningi á reiðufé úr landi. Það sem af er þessu ári eru málin orðin fimmtíu og átta. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum.

Í þessum málum voru sakborningar handteknir á Keflavíkurflugvelli við komu til landsins eða handteknir vegna gruns að vera með illa fengið fé á leið úr landi. Lagt hefur verið hald á 65 kg af kókaíni, 14.000 töflur af oxycontin, 1.800 töflur af contalgin, 100 kg af kannabis, amfetamínbasa og önnur efni sem bönnuð eru hér á landi. Um 60 milljónir kr. í reiðufé hafa verið haldlagðar í aðgerðum tollgæslu og lögreglu. Tolleftirlit í komusal flugstöðvar hefur reynst árangursríkt. Það er síðan í höndum lögreglu að rannsaka mál áfram og leiða í gegnum dómskerfið. Þessu tengt þá sátu áttatíu menn í gæsluvarðhaldi að kröfu lögreglunnar á Suðurnesjum árið 2022 í samtals 2.903 daga, eða að jafnaði átta menn á dag, alla daga ársins. Í ár er talan komin í níutíu og sex, samtals 2.617 dagar, eða um tíu menn á dag það sem af er ári. Í dag sitja tíu menn í gæsluvarðhaldi vegna innflutnings á fíkniefnum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024