Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Tugir lögsókna gegn varnarliðinu í burðarliðnum
Laugardagur 17. júlí 2004 kl. 12:31

Tugir lögsókna gegn varnarliðinu í burðarliðnum

Verkalýðs- og Sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis hefur sent utanríkisráðuneytinu 14 stefnur vegna meintra kjarasamningsbrota Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli.

Kristján Gunnarsson, formaður félagsins, segir í samtali við Fréttablaðið í dag að verið sé að undirbúa tugi lögsókna vegna málsins þar sem varnarliðið sýni engan samstarfsvilja. „Ég sé fram á málarekstur fyrir allt að 150 félagsmenn á næstu dögum og vikum.“
Þá fullyrðir hann að félagsmenn séu komnir í stríðsstellingar.

Kristján segir að auki að allir hópar sem starfa hjá varnarliðinu hafi orðið af sjálfsögðum kjarabótum.

Samkvæmt grein Fréttablaðsins segja forsvarsmenn varnarliðsins aðhendur þeirra séu bundnar vegna þess að allar aukafjárveitingar verði að fara í gegn um bandaríska þingið.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024