Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Tryggt að allir fái skólavist á næstu önn
Kristján Ásmundsson, skólameistari FS.
Þriðjudagur 1. janúar 2013 kl. 01:00

Tryggt að allir fái skólavist á næstu önn

Fjölbrautaskóli Suðurnesja og Menntamálaráðuneytið gerðu samning sín á milli í síðustu viku um aukna fjárveitingu sem gerir það að verkum að allir þeir nemendur sem hafa sótt um skólavist fyrir vorönn 2013 fá inn. FS hafði hafnað 51 nemanda um skólavist vegna skorts á fjármagni en með aukinni fjárveitingu náðist að tryggja að allir nemendur fengu inngöngu.

„Þessi niðurstaða er mjög góð fyrir þá nemendur sem fá tækifæri til að koma í skólann. Við samþykktum að taka inn 51 nemanda sem við höfðum hafnað bréflega um skólavist. Ráðuneytið mun greiða sérstaklega fyrir þá. Einnig var lofað að fara sérstaklega ofan í kjölinn í þau mál sem okkur hefur greint á milli um varðandi þá áfanga sem við teljum að hafi verið vantaldir. Við teljum okkur ekki hafa fengið sömu hækkanir og aðrir skólar,“ segir Kristján Ásmundsson, skólameistari FS.

„Ég vona að menntamálaráðuneytið standi við sinn hlut og að við fáum réttlátar hækkanir. Auðvitað er æskilegt að það verði ekki sama óvissa í vor þegar við innritum nýnema og var nú. Það þýðir lítið annað en að vera bjartsýnn.“

Búið að segja upp starfsfólki

FS hefur staðið í talsverðum niðurskurði á undanförnum árum. Sem dæmi hefur kvöldskólinn verið lagður niður en þangað leituðu margir sem voru í fullri vinnu á daginn. „Skólinn má ekki við frekari niðurskurði. Því fylgir mikil skerðing á þjónustu að geta ekki boðið upp á kvöldskóla en við verðum að draga saman seglin á þessum tímum líkt og allir aðrir. Það höfum við svo sannarlega gert. Þetta er að bitna á þeim nemendum sem eru að byrja eða hafa hætt og vilja snúa aftur,“ segir Kristján. Hann segir að starfsfólki hafi verið sagt upp áður en samningar náðust við menntamálaráðuneytið. Kristján segir óvíst hvort allir þeir starfsmenn sem sagt var upp muni snúa aftur til starfa á vorönn.

„Við vorum búnir að segja upp starfsfólki – kennurum sem voru með samning til loka þessarar annar og einnig stundakennurum. Við erum að skoða stöðuna núna og vonandi getum við fengið hluta þessa starfsfólks til baka en það er óvíst að það verði allir.“

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024