Truflun á umferð vegna viðhalds gatna
Á næstu dögum verður hafist handa við yfirlagnir á götum í Reykjanesbæ og má búast við einhverri truflun á almennri umferð. Þá geta farþegar með strætó einnig orðið fyrir óþægindum þar sem sú staða getur komið upp að bíllinn geti ekki stoppað á þeim stoppistöðvum þar sem vinna stendur yfir. Er beðist velvirðingar á þeim óþægindum sem kunna að hljótast af þessu um leið og farþegar eru beðnir um að sýna tillitssemi. Foreldrar barna sem ferðast einsömul með strætó eru sérstaklega beðnir um að huga að þessu og gera viðeigandi ráðstafanir.
Því miður er erfitt að tímsetja þessar framkvæmdir þar sem þær eru háðar veðurfari en miðað við veðurspá þá ætti þeim að ljúka í næstu viku.
Þær götur sem unnið verður við eru eftirfarandi:
Bakkastígur
Hrannargata: Milli Víkurbrautar og Vatnsnesvegar
Hafnargata: Vatnsnestorg og milli Aðalgötu og Vesturgötu
Vesturbraut: Milli Vesturgötu og Kirkjuvegar
Heiðarbraut: Á milli Vesturgötu og Heiðarbakka
Aðalgata: Gatnamót Hringbraut/Aðalgata að Heiðarbrún
Tjarnargata: Frá Hringbraut að Þverholti
Faxabraut: Milli Blikabrautar og Skólavegar
Suðurvellir: Milli Elliðavalla og Aðalgötu