Troðfull flugstöð þegar fjöldi véla lenti á sama klukkutímanum
Mikil örtröð myndaðist á Keflavíkurflugvelli um miðnætti í gærkvöld þegar 17 flugvélar lentu á rúmum klukkustíma í óvanalega mikilli flugumferð, að því er ruv.is greinir frá. Samkvæmt upplýsingum farþega réði flugstöðin varla við farþegafjöldann sem þar var samankominn.
Hann sagði að um 20 mínútna bið hafi verið frá lendingu þar til hægt var að koma flugvélinni að flugstöðinni. Þegar í flugstöðina kom var margt um manninn. Fríhöfnin var sneisafull og mjög erfitt var að koma töskum frá töskubandinu að útgangi flugstöðvarinnar segir ruv.is.