Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Tré ársins er í Reykjanesbæ
Þriðjudagur 13. september 2011 kl. 15:49

Tré ársins er í Reykjanesbæ

Skógræktarfélag Íslands útnefndi tré ársins 2011 við hátíðlega athöfn að Greniteig 9 í Reykjanesbæ nú fyrr í dag. Tré ársins er af tegundinni fjallagullregn (Laburnum alpinum) og gerir sérstaða þess og fegurð það vert útnefningar. Þetta er í fyrsta skipti sem tré á Suðurnesjum verður fyrir valinu en þetta tiltekna tré þykir fyrirtaks dæmi um hvernig trjágróður getur vaxið og dafnað suður með sjó þrátt fyrir erfið skilyrði.

Magnús Gunnarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands, flutti ávarp og veitti Sigrúnu Guðjónsdóttur, eiganda trésins, viðurkenningu. Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, flutti einnig ávarp af þessu tilefni.

Skógræktarfélag Íslands útnefnir árlega Tré ársins. Er útnefningunni ætlað að beina sjónum almennings að því gróskumikla starfi sem unnið er um land allt í trjá- og skógrækt og benda á menningarlegt gildi einstakra trjáa um allt land.





Það var fjölmennt í garðinum að Greniteig 9 í Keflavík í hádeginu.



Lúðrasveit frá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar spilaði undir gullregninu.




Magnús Gunnarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands, Sigrún Guðjónsdóttir, Sigurður Borgar Bjarnason og Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024