Trampólín fauk á bíl og skemmdi hann
	Tvo trampólín lögðu af stað í rokinu á Suðurnesjum í gær, annað í Keflavík en hitt í Njarðvík. Lögreglan kom öðru þeirra í skjól áður en skaði hlytist af ferðalagi þess en hitt fauk á bifreið og skemmdi hana áður en það yrði stöðvað. Þá hófust léttar gifsplötur á loft og lentu á götu í Grindavík.
	Lögregla beinir þeim tilmælum til eigenda trampolína og annarra lausamuna að ganga vel og tryggilega frá þeim áður en haustlægðirnar fara að banka á dyrnar með tilheyrandi hvassviðri.
				
	
				
 
	
				

 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				