Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Trampólín, fiskikör og farangursvagn tókust á loft í óveðrinu
Mikið rok var í gær. Mynd úr safni Víkurfrétta. VF-mynd/hilmarbragi
Þriðjudagur 18. apríl 2017 kl. 11:04

Trampólín, fiskikör og farangursvagn tókust á loft í óveðrinu

Trampolín í Sandgerði og farangursvagn á Keflavíkurflugvelli voru meðal hluta sem tókust á loft í hvassviðrinu í gær. Trampolínið endaði för sína á bílastæði fyrir framan slökkvistöðina í Sandgerði en vagninn hafnaði á vinstri hreyfli flugvélar á Keflavíkurflugvelli. Í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurnesjum segir að all margar tilkynningar hafi borist í gær um þakplötur sem voru að losna eða foknar út í buskann. Þá var lögreglu tilkynnt um fjúkandi fiskikör í Njarðvík.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024