TÓNLISTARSKÓLARNIR Í KEFLAVÍK OG NJARÐVÍK SAMEINAÐIR:
Kennsluhættir sameinaðir og betri nýting Nú hafa tónlistarskólarnir í Njarðvík og Keflavík, verið sameinaðir í einn skóla, Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Haraldur Árni Haraldsson, fyrrv. skólastjóri Tónlistarskóla Njarðvíkur, er nýráðinn skólastjóri hins sameinaða skóla. Hann segir að miklar breytingar hafi verið gerðar á starfinu nú þegar og fleiri munum fylgja í kjölfarið. ,,Stærstu breytingin er auðvitað sameiningin. Nú erum við að sameina kennsluhætti og skipuleggja betri nýtingu á starfsfólki. Aðrar meginbreytingar eru að við erum komin með aðstöðu í öllum grunnskólum bæjarins, nema Njarðvíkurskóla. Markmið okkar er að gera forskóla tónlistarskólans að skyldu í 1. og 2.bekk í öllum grunnskólum Reykjanesbæjar. Í 1.bekk Heiðarskóla og Myllubakkaskóla er þetta orðið að skyldufagi og mun verða í hinum skólunum eftir því hvernig okkur tekst að ráða kennara.” Fylgir mikil hagræðing sameiningunni?,,Jú, hagræðingin er nokkur. Nú er ein stjórnun og ein skrifstofa og auðveldara að nýta kennarana betur. En á meðan sjálfur tónlistarskólinn er ekki í einu húsi, þá næst ekki full hagræðing. Hún verður meiri og marktækari þegar tónlistarskólinn flyst úr húsunum við Þórustíg 7 og Austurgötu 13, í eitt húsnæði.”Hvað með nýjungar á námsbrautum?,,Við höfum sameinað tölvutónlistardeildina sem býr nú við betri aðstöðu en áður. Við stefnum á að efla ýmsar deildir innan skólans, sérstaklega söngdeildina. Við viljum sjá fleira fólk stunda söngnám og við getum vel tekið við fleiri söngnemendum. Lúðrasveitir gömlu skólanna hafa verið sameinaðar og skipt í 3-4 lúðrasveitir. Aldur og geta var látin ráða skiptingunni.”Hvernig verður starfið í vetur?,,Í nánustu framtíð komum við til með að endurskipuleggja skólann að miklu leyti í ljósi þess að eftir eitt ár taka nýjar námsskrár gildi í öllum tónlistargreinum. Við munum því nota veturinn til að búa okkur undir þær breytingar.“