Tómlegt á Garðvangi
– heimilisfólkið flutt á Nesvelli í Reykjanesbæ
Það er tómlegt um að litast á Garðvangi í Garði. Heimilisfólkið hefur verið flutt þaðan á nýtt heimili á Nesvöllum í Reykjanesbæ. Nú eru aðeins tómir stólar og rúm á hjúkrunarheimilinu í Garði.
Minniháttar starfsemi er enn í húsnæði Garðvangs en þar eru skrifstofur Dvalarheimila aldraðra Suðurnesjum, DS. Þar er nú unnið að því að ganga frá ýmsum málum en starfsemi DS breytist nú úr því að vera félag sem rekur hjúkrunarheimili yfir í að vera nokkurs konar fasteignafélag því DS á húsnæði Garðvangs í Garði og Hlévangs í Keflavík.
Nú þarf fljótlega að taka ákvörðun um hvað verður um húsakost Garðvangs en Garðmenn hafa sýnt því áhuga að gera breytingar á húsnæðinu og innrétta hjúkrunarrými samkvæmt þeim kröfum sem gerðar eru í dag til þeirrar starfsemi.
Á meðfylgjandi mynd sjáum við Finnboga Björnsson, framkvæmdastjóra DS, virða fyrir sér tóma stóla á sal Garðvangs.