Þriðjudagur 4. febrúar 2014 kl. 10:00
Tölvum og síma stolið í innbroti
- Skemmdir við útidyr og á gluggum.
Brotist var inn í íbúðarhúsnæði í Reykjanesbæ um helgina og þaðan stolið Acer fartölvu, Nokia farsíma og XBox leikjatölvu. Skemmdir sáust á glugga við hlið útidyra og hafði sá, eða þeir, sem þarna voru að verki komist inn um hann. Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar málið