Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga
Frá Ásbrú í Reykjanesbæ.
Laugardagur 16. desember 2017 kl. 13:25

Tölvubúnaði fyrir 20 milljónir stolið - Lögregla leitar upplýsinga

Tölvubúnaði að verðmæti um 20 milljónir króna var stolið úr húsnæði að Heiðartröð 554, Ásbrú í Reykjanesbæ aðfararnótt 6. desember sl. Í húsnæðinu var verið að setja upp gagnaver og var búnaðurinn til þess ætlaður. Um er að ræða 600 skjákort, 100 aflgjafa, 100 móðurborð, 100 minniskubba og 100 örgjörva og var þetta allt glænýtt.

Sá eða þeir sem þarna voru að verki höfðu komist inn í gegnum lítið gat á norðurgafli hússins en fyrir það hafði verið fest spónaplata. Innbrotið átti sér stað á tímabilinu frá 20:00  að kvöldi  þriðjudagsins 5. desember til kl. 09:10 að morgni miðvikudagsins 6. desember.
Í byggingu að Heiðartröð 555 hafði einnig verið farið og þaðan einnig stolið nokkru af tölvubúnaði.

Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar málið og biður þá sem kunna að búa yfir upplýsingum um það, að hafa samband í síma 4442200. Jafnframt að koma upplýsingum á framfæri sé verið að bjóða til sölu nýjan tölvubúnað samanber ofangreint.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024