Tölva og myndaskanni fyrir gesti bókasafnsins í Garði
Samþykkt hefur verið í bæjarstjórn Garðs að kaupa tölvu og myndaskanna á bókasafnið í Garði sem gestir safnsins hafa aðgang að.
Með því móti verður íbúum gert auðveldara um vik að koma gömlum myndum, sem og nýjum, á stafrænt form sem yrði svo hægt að safna saman til varðveislu.
Hugmyndir um myndaskannan voru settar fram á Facebook.com þar sem er hópur sem kallast „Garðmenn og Garðurinn“ en þar setur fólk inn gamlar og nýjar myndir úr Garðinum og lætur fylgja þeim frásagnir.