Töluvert um umferðaróhöpp
Árekstur vinnuvéla á Keflavíkurflugvelli
Nokkuð var um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Tvær vinnuvélar rákust saman á flugstöðvarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Stjórnandi annarrar fékk högg á hnakkann og fann fyrir eymslum í hálsi. Hann ætlaði að leita læknis.
Ökumaður blindaðist af sól, að sögn, og ók yfir umferðareyju, þar sem hann tók niður umferðarmerki. Annar ökumaður ók á ljósastaur.
Þá varð árekstur á hringtorginu á Hafnargötu í Keflavík. Annar ökumannanna var með útrunnið ökuskírteini.
Auk þessa sinnti lögregla þremur minni háttar umferðaróhöppum.