Töluvert um umferðaróhöpp
Nokkuð var um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Í fyrradag beygði ökumaður sig eftir farsíma sínum sem hann hafði misst á bílgólfið og ók við það á kyrrstæða bifreið. Maðurinn kenndi eymsla og var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar. Bílana þurfti að fjarlægja með dráttarbifreið. Þá rann mannlaus bifreið á grindverk við Flugstöð Leifs Eiríkssonar og annarri var ekið á ljósastaur í Sandgerði. Var höggið það mikið að staurinn lagðist flatur út á vegöxlina.
Einn ökumaður til viðbótar hafði samband við lögregluna og kvaðst hafa ekið út af veginum og hafnað úti í móa. Reyndist bifreiðin vera eina 72 metra frá veginum þegar að var komið.
Loks var tilkynnt um erlendan ökumann sem hafði fest bifreið sína í leðju nokkuð frá bensínstöð í Njarðvík og þurfti aðstoð við að losa hana.