Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Töluvert um fíkniefnaakstur
Föstudagur 1. febrúar 2013 kl. 11:06

Töluvert um fíkniefnaakstur

Lögreglan á Suðurnesjum hefur á síðustu dögum handtekið sjö ökumenn, sem óku undir áhrifum fíkniefna. Um var að ræða sex karlmenn og eina konu. Kannabislyktin af einum þeirra var beinlínis yfirþyrmandi þegar hann var færður inn í lögreglubifreið. Við húsleit á heimili annars ökumanns fundu lögreglumenn kannabisefni í skúffu, poka með hvítu efni í ísskáp, stera og steratöflur.

Þriðji ökumaðurinn, af þessum sjö, var með kannabis á sér þegar hann var handtekinn. Í fjórðu bifreiðinni, sem stöðvuð var vegna fíkniefnaaksturs ökumanns , reyndist annar tveggja farþega, vera með kannabis í fórum sínum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ökumennirnir sjö, sem handteknir voru eru á aldrinum frá sautján ára til tæplega þrítugs.