HSS
HSS

Fréttir

Töluvert annríki hjá Lögreglunni í Keflavík
Föstudagur 24. janúar 2003 kl. 12:21

Töluvert annríki hjá Lögreglunni í Keflavík

Töluvert hefur verið að gera hjá Lögreglunni í Keflavík í vikunni en staðið var að sameiginlegu umferðarátaki dagana 21.-23. janúar hjá lögregluembættum á Suðvesturlandi. Átakið beindist sérstaklega að ljósabúnaði bifreiða og útsýni ökumanna.
Á mánudag var Lögreglunni í Keflavík tilkynnt um þjófnað á lítilli beltakerru í eigu fyrirtækisins SEES. Kerran er með verksmiðjunúmerið KG-8871-KOTS, sem er á beisli hennar. Kerran er galvinseruð og tveggja öxla bílkerra. Líklegt að kerrunni hafi verið stolið í desmber sl., segir í dagbók Lögreglunnar í Keflavík.Á mánudag var lögreglu einnig tilkynnt um að ekið hefði verið utan í Nissan Primera fólksbifreið, grá að lit, við Vatnsnesveg 33, Keflavík, þar sem skrifstofur Sýslumannins er til húsa og tjónvaldur ók af vettvangi án þess að tilkynna um atvikið.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um þessi tilvik eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglunna í Keflavík í síma 420-2400.
5 umráðamenn bifreiða voru kærðir fyrir vanrækslu á að færa ekki bifreiðar sínar til aðalskoðunar á tilskyldum tíma.
2 umráðamenn bifreiða voru kærðir fyrir að leggja bifreiðum sínum ranglega.
Tveir voru teknir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbraut, annar á 119 og hinn á 110 km hraða þar sem leifður er hámrkshraði 90 km.

Á þriðjudag var lögreglunni tilkynnt um innbrot og skemmdarverk í Kára GK-146, þar sem hann lá við bryggjuna Eyjabakka í Grindavíkurhöfn. Brotin var rúða í stýrishúsi og farið inn í það, en engu var stolið.
Á þriðjudag var lögreglu einnig tilkynnt um þjófnað og skemmdir á bifreiðinni PO-078, þar sem hún stóð við Grófina 19, Keflavík. Teknir voru tveir hátalara úr bifreiðinni og fremri hliðarrúða hægra megin var brotin. Þetta mun líklega hafa gerst helgina 18.-19. janúar sl.
Lögreglumenn í Keflavík höfðu afskipi af 22 ökumönnum vegna umferðarátaksins og var einn þeirra kærður þar sem útsýnið aftur fyrir bifreið hans var áfátt, en hann var ekki með tilskylda spegla er hann var með breiðan eftirvagn í togi. Aðrir ökumenn fengu áminningu þar sem ljósabúnaður var áfátt.
Einn var tekinn á 115 km hraða á Garðvegi þar sem 90 km hárkshraði er og annar var tekinn á Reykjanesbraut á 113 km hraða þar sem leyfður hámarkshraði er 90 km.
2 umráðamenn bifreiða voru kærðir fyrir vanrækslu á að færa ekki bifreiðar sínar til aðalskoðunar á tilskyldum tíma.
Á þriðjudagskvöld voru höfð afskipti af ungmennum frá höfðuborgarsvæðinu þar sem þau voru á ferðinni í Grindavík. Við leit í bifreiðinni fannst „Butterflyhnífur“. Hald var lagt á hnífinn en ökumaðurinn, 19 ára karlmaður, kvaðst eiga hnífinn.

Á miðvikudag voru 25 ökutæki voru stöðvuð vegna umferðarátaksins á tímabilinu frá kl. 07:00-19:00
28 ökumenn voru áminntir fyrir vanrækslu á viðhaldi ljósabúnaðar bifreiða sinna eða vegna rangrar notkunar ljósabúnaðar. Einn ökumaður var kærður.


Á fimmtudagsmorgun var bifreið ekið á ljósastaur á Reykjanesbraut við Rósaselstorg. Engin meiðsl urðu á fólki en eignatjón varð nokkurt. Einnig var bifreið ekið á ljósastaur á Flugvallarvegi móts við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þar hafði ökumaður misst stjórn á bifreið sinni í hálku. Ökumaður og farþegi voru fluttir undir læknishendur með sjúkrabifreið en meiðsl þeirra voru talin minni háttar.
Á fimmtudag voru 20 umráðamenn bifreiða kærðir fyrir vanrækslu fyrir að færa ekki bifreiðar sínar til aðalskoðunar á tilskyldum tíma. Þá voru 2 ökutæki stöðvuð í umferðarátaki og ökumenn áminntir um vanbúinn ljósabúnað.
Um miðjan dag á fimmtudag var ökumaður fólksbifreiðar kærður fyrir að aka bifreið sinni á 148 km hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði var 90 km. Ökumaðurinn má búast við að missa ökuskírteini sitt auk þess að greiða háa sekt þegar mál hans verður tekið fyrir.
9 ökumenn voru áminntir fyrir vanrækslu á viðhaldi ljósabúnaðar bifreiða sinna eða vegna rangrar notkunar búnaðarins.
Bílakjarninn
Bílakjarninn