Sjómannakveðjur 2
Sjómannakveðjur 2

Fréttir

Töluvert annríki hjá lögreglu
Sunnudagur 18. júní 2006 kl. 09:39

Töluvert annríki hjá lögreglu

Lögregla var með öflugt eftirlit við veitingastaði í Keflavík í nótt sem fór að mestu vel fram.
 
Milli klukkan 4:30 og 5:30 var hins vegar töluvert annríki vegna slagsmála og annarra óláta á Hafnargötu og Tjarnargötu. Tveir aðilar voru fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja með áverka í andliti eftir að fjórir menn á þrítugsaldri veittust að þeim. Annar hinna slösuðu er nefbrotinn, en hinn er enn í rannsókn samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

 

Árásarmennirnir eru allir í haldi lögreglu.

 

Símamynd: Úr miðbænum í nótt. Myndin tengist fréttinni ekki að öðru leyti.

Bílakjarninn
Bílakjarninn