Tollverðir mótmæla einhliða ákvörðun dómsmálaráðuneytisins
Tollverðir mótmæla einhliða ákvörðun dómsmálaráðuneytisins er varðar upplausn sameinaðs löggæsluembættis Suðurnesja. Þetta segir í ályktun sem fundurinn sendi frá sér í kvöld. Þar segir einnig að tollverðir sjá engar efnislegar eða fjárhagslegar ástæður fyrir þessari ákvörðun og óska eindregið eftir að hún verði tekin til endurskoðunar.
Tollverðir óttast þau áhrif, sem ákvörðunin getur haft á hinn góða starfsanda og frábæra árangur, sem undanfarin ár hefur einkennt embætti Jóhanns R. Benediktssonar lögreglu- og tollstjóra. Tollverðir óttast einnig að hin áratuga langa og góða samvinna löggæsluaðila á Suðurnesjum muni minnka. Þá óttast tollverðir að fíkniefnaeftirlit, tolleftirlit, eftirlit með innflutningi á vopnum og öðrum ólöglegum varningi og innheimta aðflutningsgjalda verði óskilvirkari og versni í kjölfar þessara breytinga.
Oafngreint var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum á félagsfundi Tollvarðafélags Íslands á Suðurnesjum 27. mars 2008.