Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Tólf hagkvæmar leiguíbúðir byggðar í Grindavík
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 7. júlí 2020 kl. 07:36

Tólf hagkvæmar leiguíbúðir byggðar í Grindavík

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur úthlutað ríflega 3,6 milljörðum króna í stofnframlög til byggingar og kaupa á 600 hagkvæmum leiguíbúðum víðsvegar um landið, svokallaðra almennra íbúða. Leiguíbúðirnar verða í 15 sveitarfélögum og þar af verða 12 á Suðurnesjum, nánar tiltekið í Grindavík. Fjármunirnir eru hugsaðir til að styðja við framboð ódýrra leiguíbúða fyrir almenning og verða nýttir til byggingar á 438 íbúðum og kaupa á 162 íbúðum. 

Stofnframlögin renna til byggingaraðila í almenna íbúðakerfinu og er ætlunin að slá á þann mikla húsnæðisvanda sem lægri og millitekjuhópar hafa mátt stríða við undanfarin ár. Fólk sem leigir íbúð í kerfinu þarf ekki að verja jafn stórum hluta af ráðstöfunartekjum heimilisins til húsnæðis og það myndi í mörgum tilfellum gera á frjálsa leigumarkaðnum og býr við meira öryggi því ekki er hægt að segja upp leigunni nema að ýmsum skilyrðum uppfylltum. 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Framlög til íbúða í 15 ólíkum sveitarfélögum í þessari úthlutun 
Alls fengu 15 sveitarfélög úthlutað stofnframlögum en flestar af íbúðunum 600 eru á höfuðborgarsvæðinu, eða 472. Auk íbúðanna 12 á Suðurnesjum er um að ræða átta íbúðir á Austurlandi, 14 á Norðurlandi eystra, 13 á Norðurlandi vestra, 10 á Suðurlandi,fjórar á Vestfjörðum og 67 á Vesturlandi.  

Sem stuðning við lífskjarasamningana ákvað ríkisstjórnin að auka framlögin til almenna íbúðakerfisins um 2,1 milljarð árlega á árunum 2020 til 2022 til þess að flýta fyrir uppbyggingu á hagkvæmu húsnæði og stuðla að auknu húsnæðisöryggi leigjenda.   

Heildarfjárfesting tæplega 20 milljarða króna   

Ljóst er að stofnvirði þeirra verkefna sem samþykkt voru í þessari úthlutun fela í sér fjárfestingu á húsnæðismarkaði upp á tæplega 20 milljarða króna. Þar af fara tæpir 14 milljarðar í uppbyggingu á hagkvæmu húsnæði og 6 milljarðar í kaup.  
Alls bárust HMS 35 umsóknir um samtals 5,6 milljarða króna og af þeim voru 31 umsóknir samþykktar, ýmist að fullu eða að hluta til. Sveitarfélög nutu forgangs við úthlutunina og hlutu alls um 1,2 milljarða króna.