Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Tólf ára stúlkum misþyrmt
Fimmtudagur 31. maí 2007 kl. 10:08

Tólf ára stúlkum misþyrmt

Tvær 12 ára stúlkur úr Reykjanesbæ voru á sunnudagskvöld færðar með valdi upp í bifreið, ekið í yfirgefið hús í Innri Njarðvík þar sem þeim var misþyrmt á marga vegu og þær niðurlægðar. Gerendur eru eldri stúlkur, en atvikið hefur verið kært til lögreglu.

Á vef lögreglunnar kemur fram að læknir á HSS hafi haft samband við lögreglu á sunnudagskvöld þar sem stúlkurnar tvær höfðu komið til skoðunar. Við eftirgrennslan kom atburðarásin í ljós en stúlkurnar sem numu þær á brott, ein 17 ára og tvær 15 ára beittu fórnarlömbin höggum þegar komið var í fyrrnefnt hús, rifu í hár stúlknanna og hræktu á þær. Einnig voru þær neyddar til að reykja gegn vilja þeirra.

Málið er litið mjög alvarlegum augum og er nú í lögreglurannsókn ásamt því sem barnaverndarnefnd hefur verið tilkynnt um málið.

Samkvæmt heimildum Víkurfrétta er um að ræða langa atburðarás sem endaði með þessu ódæði. Voru jafnvel fleiri stúlkur á grunnskólaaldri sem komu að árásinni.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024