HSS
HSS

Fréttir

Tólf á pinnanum
Föstudagur 24. júní 2011 kl. 17:10

Tólf á pinnanum

Tólf ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur á Reykjanesbrautinni í gær. Sá sem hraðast ók var á 133 kílómetra hraða og bíður hans nú 90 þúsund króna sekt og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá.

Sá sem ók „hægast“ af þeim sem voru teknir í gær var á 114 kílómetra hraða og fær hann 50 þúsund króna sekt og einn refsipunkt í ökuferilsskrá.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Lögreglan á Suðurnesjum er með sérstakt umferðareftirlit í gangi þessa dagana og munu því ökumenn eiga von á því að sjá lögregluna við mælingar á næstu dögum.