Tökum heppnina úr umferð
Þjóðarátak VÍS gegn umferðaslysum er hafið sjötta sumarið í röð. Í ár verður sjónum einkum beint að nokkrum meginþáttum sem hver um sig er meðal algengustu orsaka umferðaslysa hér á landi. Auk hraðaksturs eru það, ölvunarakstur, farsímanotkun undir stýri og önnur ökuhegðun sem slævir athygli og einbeitingu í akstri.
Yfirskrift þjóðarátaksins er að þessu sinni „Tökum heppnina úr umferð“ og vísar hún til þess að það þýðir ekki að treysta á heppni í umferðinni. „Það getur verið að menn komist upp með að aka of hratt eða að sýna aðra óábyrga hegðum í umferðinni í einhvern tíma af því að heppnin er með þeim. En þegar heppnin er ekki lengur með í för geta afleiðingarnar orðið hrikalegar. Um það eru því miður allt of mörg átakanleg dæmi,“ segir Ragnheiður Davíðsdóttir, forvarna- og öryggismálafulltrúi VÍS, sem í dag kynnti átakið fyrir fjölmiðlamönnum ásamt Ásgeiri Baldurs framkvæmdastjóra félagsins.
Nýr samskiptavefur um umferðaröryggismál
Sem fyrr byggir þjóðarátak VÍS á að miðla upplýsingum um umferðaröryggismál og að vekja almenning til umhugsunar um afleiðingar óábyrgrar hegðunar í umferðinni. Að þessu sinni hefur verið útbúin ný slóð á vefsíðu VÍS, n.k. samskiptavefur, þar sem þess verður freistað að virkja almenna vegfarendur til þátttöku. Þar getur almenningur sent inn fyrirspurnir og sagt frá reynslu sinni af umferðarmenningunni, almennt. Það var Bergþóra Harpa Þórarinsdóttir sem í dag opnaði vefsíðuna að viðstöddum fulltrúum fjölmiðla í tjónaskoðunarstöð VÍS í Kópavogi. Um síðustu helgi var liðið eitt ár frá því að Þórarinn Samúel Guðmundsson, 15 ára sonur Bergþóru lést í bílslysi í kjölfar ofsaaksturs í Öxnadal þann 17. júní í fyrra en auk hans lést í slysinu 18 ára ökumaður bílsins.
„Við sjáum þennan vef fyrir okkur sem samstarfsvettvang okkar og almennings, nokkurs konar þjóðarsál vegfarenda. Það er sameiginlegt hagsmunamál okkar allra að minnka fórnarkostnaðinn sem umferðaslysin leggur á almenning í landinu. Þess vegna langar okkur að virkja almenna vegfarendur og fá þá til að deila með okkur sinni reynslu úr umferðinni og koma með ábendingar um það sem betur má fara. Við
munum einnig leita svara við spurningum sem kunna að brenna á fólki og birta þau á vefnum og koma ábendingum vegfarenda áfram til réttra aðila“ segir Ragnheiður Davíðsdóttir.
Umferðarupplýsingar frá Vegagerðinni
Á vefsíðunni verða meðal annars birtar upplýsingar úr svokölluðum umferðargreinum, en það eru greiningartæki sem Vegagerðin hefur komið fyrir við þjóðvegina víða um land. Forsvarsmenn Vegagerðarinnar hafa veitt VÍS heimild til að nýta upplýsingar úr umferðargreinunum inn á vefsíðuna en í umferðargreinunum má fá ítarlegar upplýsingar um umferðina á hverjum stað. Þannig er til dæmis hægt að fylgjast með hraða og þyngd ökutækja, bili milli bíla og ýmsu fleiru sem gefur glögga mynd af ástandinu á þjóðvegunum á hverjum tíma.
Nú þegar fyrsta stóra umferðarhelgi ársins nálgast, sem er fyrsta helgin í júlí, er tilefni til að rifja upp þá nöturlegu staðreynd að síðast liðin fimm ár hafa undantekningalaust orðið alvarleg umferðaslys um þessa helgi. Samkvæmt tölum frá Umferðastofu hafa alls 14 manns slasast alvarlega í umferðinni um þessa einu helgi frá árinu 2001 og þar af hafa 2 látist. Þegar skoðaðar eru tölur um umferðahraða úr umferðagreinum Vegagerðarinnar frá 10 stöðum á landinu þessa fyrstu helgi í júlí í fyrra kemur í ljós að þá óku að jafnaði 30% ökumanna yfir 100 km hraða og um 10% ökumanna óku hraðar en 110 km á klst.
Ný auglýsingaherferð
Eins og undanfarin ár er viðamikil auglýsingaherferð í blöðum og ljósvakamiðlum liður í Þjóðarátaki VÍS gegn umferðaslysum. Talið er að áróður og fræðsla sé ein áhrifaríkasta leiðin til að hafa áhrif á hegðunarmynstur í umferðinni. Síðustu ár hefur sterkur boðskapur í auglýsingaherferðum VÍS vakið vegfarendur til umhugsunar um afleiðingar óábyrgrar hegðunar í umferðinni og með þeim hætti hefur félagið lagt sitt af mörkum til að auka öryggi og stemma stigu við óhöppum og slysum. Á næstu vikum mun VÍS birta nýjar og sláandi, útvarps-, sjónvarps- og blaðaauglýsingar þar sem yfirskriftin er „Tökum heppnina úr umferð“.
Myndin: Bergþóra Harpa Þórarinsdóttir (th.) opnaði nýja samskiptasíðu um umferðaröryggismál á vef VÍS í dag. Um síðustu helgi var liðið eitt ár frá því að sonur hennar lést í umferðaslysi í kjölfar hraðaksturs í Öxnadal. Með henni á myndinni er Ragnheiður Davíðsdóttir forvarna- og öryggismálafulltrúi VÍS.