Tók lán til að leysa út köttinn
Kattareigandinn Kristján Guðmundsson varð að taka lán til þess að leysa köttin Nölu úr haldi frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja. Magnús H.
Guðjónsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlitsins segir að farið sé eftir reglum.
Kristján Guðmundsson fékk ekki greiðslufrest til mánaðarmóta og tók lán til þess að leysa köttinn sinn Nölu út frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja.
Kötturinn var fangaður utan við heimili Kristjáns og átti að aflífa hann á miðvikudag í síðustu viku ef greiðsla yrði ekki innt af hendi.
Kristján segir í samtali við Fréttablaðið í dag að framkoma heilbrigðisyfirvalda sé ómannúðleg en hann fluttist með fjölskyldu sína frá Akureyri fyrir um ári síðan. Þá segist Kristján hafa farið með Nölu og annan kött sem fyglir heimilinu til dýralæknis þar sem kettirnir voru skráðir, bólusettir og ormahreinsaðir. Kristján segist ennfremur ekki hafa vitað að kattahald í Reykjanesbæ kosti 15 þúsund krónur og tekur fram að þannig hafi það ekki verið á Akureyri.
Magnús segir að Kristjáni hafi verið boðið að greiða með kreditkorti fram í tímann eða skilja eftir ávísun. Það hafi hann ekki getað gert. Kristján segir að Heilbrigðiseftirlitið fari eftir reglunum og að erfitt sé að gera undantekningar. Magnús segir einnig að reglur um kattahald sé mismunandi eftir sveitarfélögum og að þær séu stífar í Reykjanesbæ til að koma í veg fyrir að fólk fái sér ketti, hirði síðan ekki um þá og láti svo lóga þeim.
Af þeim orsökum segir Kristján að það heyri nú til undantekninga að köttum sé lógað.
Magnús segir við Fréttablaðið að eftirlitið auglýsi reglulega skilmála í bæjarblöðum, en bendir þeim á sem ekki vtia að tilkynna þurfi eftirlitinu sjálfu um kattahaldið.
VF-mynd/ elg - Kristján gengur burt með Nölu eftir að hafa leyst hana út.
Frétt úr Fréttablaðinu í dag