Tók framúr löggunni á 180 km. hraða
Þegar lögreglan á Suðurnesjum var við umferðareftirlit á Reykjanesbraut í vikunni var bifreið ekið á miklum hraða fram úr lögreglubifreiðinni. Ökumaður hennar, sem er á þrítugsaldri, kvaðst í viðræðum við lögreglumenn hafa verið á 180 km hraða þegar hann ók fram úr þeim, en ekki hafa séð að hann var að aka fram úr lögreglubifreið. Hámarkshraði á umræddum vegarkafla er 90 km á klukkustund. Ökumannsins bíður ákæra og dómur.
Þá var nokkuð um umferðaróhöpp í umdæminu í vikunni sem flest voru rakin til hálku á vegum. Þau voru ekki stórvægileg og engin alvarleg slys á fólki. Þó valt bifreið út af Garðvegi og endaði á toppnum. Ökumaður slapp ómeiddur. Mikil hálka var á veginum og dekkjabúnaður bifreiðarinnar ekki sem skyldi.