Sunnudagur 23. september 2007 kl. 10:21
Tjónvaldur stakk af
Í gærmorgun var ekið utan í dökkgrá Toyota Auris bifreið fyrir utan Sundmiðstöðina í Keflavík. Tjónvaldur stakk af en talsverðar skemmdir voru á vinstri hlið bifreiðarinnar sem hann ók utan í. Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir vitnum að óhappinu.