HSS
HSS

Fréttir

Tjaldað á öllum grænum blettum
Sunnudagur 5. september 2010 kl. 15:34

Tjaldað á öllum grænum blettum

Húsbílum og hjólhýsum var komið fyrir á öllum grænum blettum sem fundust í nágrenni við hátíðarsvæði Ljósanætur. Þannig voru þessir húsbílar og hjólhýsi við skrúðgarðinn í Keflavík en einnig var aðstaða fyrir húsbíla og hjólhýsi við Myllubakkaskóla.


Talsvert var einnig um þennan ferðabúnað í Grófinni og jafnvel á auðri lóð á Kirkjvegi, þar sem minnismerkið um Skjaldarbrunann stendur, hafði verið komið fyrir húsbílum og hjólhýsum um Ljósanæturhelgina.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


VF-mynd: Hilmar Bragi