HSS
HSS

Fréttir

Tíunda mest lesna frétt ársins á VF: Fjögur börn á þremur árum
Fimmtudagur 29. desember 2016 kl. 06:00

Tíunda mest lesna frétt ársins á VF: Fjögur börn á þremur árum

Páskaviðtal Víkurfrétta um barnalán hjónanna Erlu Reynisdóttur og Skúla Björgvins Sigurðssonar var tíunda mest lesna umfjöllun Víkurfrétta á árinu. Skúli var greindur með krabbamein 16 ára gamall og var tjáð af læknum að vegna sterkra lyfjagjafa gæti hann ekki eignast börn nema með hjálp tækninnar. Í viðtalinu segja þau frá því hvernig þau höfðu reynt að eignast barn frá árinu 2006 en ekki gengið sem skyldi. Árið 2013 fengu Skúli og Erla nokkuð óvænt átta daga gamlan dreng í tímabundið fóstur. Það varð svo síðar varanlegt fóstur. Síðan þá hefur barnalánið leikið við þau því þrjár dætur hafa bæst í hópinn.

Viðtalið má lesa hér.

Bílakjarninn
Bílakjarninn