Tíu teknir fyrir hraðakstur
Lögreglan í Keflavík kærði tíu ökumenn fyrir of hraðan akstur í gær og í nótt. Níu þeirra voru á Reykjanesbrautinni en einn á Hringbraut.
Á dagvaktinni voru nokkrir ökumenn stöðvaðir fyrir minni sakir, þar á meðal að tala í síma við akstur og að hafa litfilmur í gluggum sem samræmdust ekki reglugerðum þar að lútandi.
Þá var lögreglu tilkynnt um þjófnað á hjóli í eigu 7 ára drengs á aðfaranótt mánudags, en um er að ræða 20 tommu Schwinn reiðhjól grátt og blátt að lit.