Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Tíu milljarða framkvæmdir við nýja Reykjanesvirkjun
Miðvikudagur 21. apríl 2004 kl. 10:25

Tíu milljarða framkvæmdir við nýja Reykjanesvirkjun

Á milli 100 og 200 manns munu starfa við uppsetningu virkjunar Hitaveitu Suðurnesja á Reykjanesi á framkvæmdatíma. Gert er ráð fyrir að virkjunin verði gangsett eftir um tvö ár. Heildarkostnaður virkjanaframkvæmdanna er um 10 milljarðar króna. Veltuaukning Hitaveitu Suðurnesja vegna orkusölusamnings við Norðurál er um einn milljarður króna á ári.
Að sögn Júlíusar Jónssonar forstjóra Hitaveitu Suðurnesja eru 20 megawött óseld, en heildar raforkuframleiðsla virkjunarinnar verður 100 megawött. Segir Júlíus að gera megi ráð fyrir að umframorkan verði seld fyrir um 250 milljónir króna. Framkvæmdir við virkjunina hafa staðið yfir í nokkurn tíma. Verið er að bora sjöundu borholuna á Reykjanesi, en alls verða holurnar 9 til 11 talsins. 
Um síðustu helgi var samið við japanska fyrirtækið Sumitomo um kaup á tveimur 50 MW túrbínum og hljóðar samningurinn upp á um 1700 milljónir króna. Verktími virkjunarinnar er mjög knappur en samkvæmt orkusölusamningnum verður verksmiðjan gangsett 1. maí árið 2006. „Fyrri túrbínan kemur 31. ágúst á næsta ári og sú seinni 30. september og þá þurfa byggingar að vera tilbúnar. Það verður að halda vel á spöðunum og skipuleggja þetta vel. Því skiptir miklu máli að semja við öflugan verktaka sem hefur þekkingu og bolmagn til að sjá um verkefnið.“
Spurður um hvað samningurinn þýði fyrir Suðurnesjamenn í atvinnulegu tilliti sagði Júlíus að hann hefði verulega þýðingu fyrir Suðurnesin. „Það verða á bilinu 100 til 200 manns að vinna á svæðinu stóran hluta framkvæmdatímans. Við vitum ekki enn hvaða verktakar munu vinna verkið. Örugglega munu heimamenn koma talsvert að því, bæði hvað varðar þjónustu og verkefni tengd byggingunni. Við ætlum að gangsetja eftir tvö ár en verkinu lýkur ekki fyrr en haustið 2006.“
Í næstu viku verður auglýst eftir verktökum á evrópska efnahagssvæðinu sem hafa áhuga á að reisa virkjunina og í framhaldi af því er verkið boðið út. „Við vonumst til að á miðju sumri verði fyrsta skóflustungan tekin að virkjuninni og að byggingaframkvæmdir hefjist strax í kjölfarið og standi yfir næstu tvö árin,“ segir Júlíus.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024