Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Tíu framúrskarandi fyrirtæki á Suðurnesjum 2011
Miðvikudagur 8. febrúar 2012 kl. 09:12

Tíu framúrskarandi fyrirtæki á Suðurnesjum 2011

Creditinfo hefur unnið að ítarlegri greiningu sem sýnir hvaða íslensku fyrirtæki fá bestu einkunn í styrk- og stöðugleikamati félagsins.

Af rúmlega 32.000 fyrirtækjum sem skráð eru í Hlutafélagaskrá reyndust 244 fyrirtæki uppfylla þau skilyrði sem Creditinfo setur til að fá viðurkenningu sem framúrskarandi fyrirtæki. Af þessum 244 fyrirtækjum eru tíu staðsett á Suðurnesjum. Vottun af þessu tagi þekkist víða erlendis en á stærri mörkuðum er algengara að skilyrði vottunar séu ekki eins ströng og ákveðið var að setja hér á landi. Að mati Creditinfo er mikilvægara á litlum markaði að draga fram styrkleika fyrirtækja sem birtist í stöðugleika í rekstri fremur en niðurstöðum einstakra rekstrarára. Slíkar kröfur eru líklegri til að undanskilja sveiflukenndan árangur stærri eignarhalds- og móðurfélaga en undirstrika frekar styrkleika fyrirtækja í virkri starfsemi.

Eftirfarandi upplýsingar eru lagðar til grundvallar á mati Creditinfo um hvort fyrirtæki uppfylli skilyrði styrkleikamatsins:

Að hafa skilað ársreikningum til RSK 2008 til 2010
Minna en 0,5% líkur á alvarlegum vanskilum
Að sýna jákvæðan rekstrarhagnað (EBIT) þrjú ár í röð
Að ársniðurstaða sé jákvæð þrjú ár í röð
Eignir séu 80 milljónir eða meira árin 2008 - 2010
Að eigið fé sé 20% eða meira, rekstrarárin 2008 til 2010
Að vera með skráðan framkvæmdastjóra og stjórnarmenn í hlutafélagaskrá
Að vera virkt fyrirtæki skv. skilgreiningu Creditinfo

Fyrirtækin 10 á Suðurnesjum sem stóðust styrk- og stöðugleikamat Creditinfo eru eftirfarandi í þeirri röð sem þau birtast á lista Creditinfo:

20. sæti: Samkaup hf., Reykjanesbæ
40. sæti: Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Reykjanesbæ
45. sæti: Íslenska félagið ehf., Reykjanesbæ
49. sæti: Fiskverkunin Ásbverg, Sandgerði
62. sæti: K&G ehf., Sandgerði
81. sæti: Fram Foods Ísland hf., Reykjanesbæ
135. sæti: Veiðafæraþjónustan ehf., Grindavík
197. sæti: Express ehf., Reykajnesbæ
199. sæti: BESA ehf., Grindavík
220. sæti: Verkfræðistofa Suðurnesja ehf., Reykjanesbæ

Listi yfir þau fyrirtæki sem stóðust styrk- og stöðugleikamatið er fánlegur hjá Creditinfo. Hann inniheldur allar fjárhagsupplýsingarnar sem eru taldar upp hér að ofan, almenn netföng fyrirtækjanna, póstföng fyrirtækjanna og netföng framkvæmdastjóra.

Hér má sjá þau félög í stafrófsröð sem eru á lista yfir framúrskarandi fyrirtæki 2011: http://www.creditinfo.is/lanstraust/onnur-thjonusta/framurskarandi-fyrirtaeki-2011/

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024