Titrandi bakpoki
Starfsmenn öryggisgæslunnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar urðu um helgina varir við titring í bakpoka á flughlaði við flugstöðina.
Þeir höfðu samband við lögregluna á Suðurnesjum og tilkynntu henni um málið. Í ljós kom að topphólf pokans lét eitthvað ófriðlega og reyndist sökudólgurinn vera rafmagnsrakvél sem hrokkið hafði í gang. Eftir að slökkt hafði verið á henni var pokinn klár í loftið og hélt ásamt eiganda sínum til Kaupmannahafnar.