TÍMAMÓT Í REKSTRI HITAVEITU SUÐURNESJA
Tímamót urðu í rekstri Hitaveitu Suðurnesja sl. föstudag þegar Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra undirritaði virkjunarleyfi til handa fyrirtækinu vegna orkuvers 5. Orkuverið er nú á lokastigi en byggingu lýkur eftir tvo mánuði. Jafnframt voru undirritaðir orkukaupa- og orkusölusamningar við Landsvirkjun.