Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

  • Tímamót í ferðaþjónustu - hvernig á að bregðast við?
  • Tímamót í ferðaþjónustu - hvernig á að bregðast við?
    „Vöxtur í greininni skapar mikil tækifæri en einnig áskoranir,“ segir Þuríður hjá Markaðsstofu Reykjaness.
Mánudagur 2. mars 2015 kl. 17:00

Tímamót í ferðaþjónustu - hvernig á að bregðast við?

Fundur í bíósal Duus-húsa þriðjudagsmorgun 3. mars.

„Það eru tímamót í ferðaþjónustu á Íslandi. Ferðaþjónustan er nú sú atvinnugrein sem skilar þjóðarbúinu mestum gjaldeyristekjum og árleg fjölgun erlendra ferðamanna hingað til lands hefur verið yfir 20% undanfarin þrjú ár.  Vöxtur í greininni skapar mikil tækifæri en einnig áskoranir og við þeim þarf að bregðast af skynsemi,“ segir Þuríður H. Aradóttir verkefnastjóri Markaðsstofu Reykjaness sem boðar til opins fundar vegna mótunar stefnu og framtíðarsýnar fyrir ferðaþjónustu á Íslandi.  

Fundurinn er í samvinnu við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og Samtök ferðaþjónustunnar og er þriðjudaginn, 3. mars n.k. kl. 8.30-10.00 í bíósal Duushúsa.

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra setti í gang í október sl. vinnu við mótun stefnu og framtíðarsýnar fyrir ferðaþjónustu á Íslandi. Markmiðið er að byggja góðan grunn fyrir íslenska ferðaþjónustu og stuðla að samkeppnishæfni hennar á alþjóðlegum vettvangi til lengri tíma. Stefnt er að því að niðurstöður vinnunnar liggi fyrir í júní nk.

Mikið hefur verið kallað eftir því að stjórnvöld móti stefnu og framtíðarsýn fyrir íslenska ferðaþjónustu og sterkur vilji er meðal hagsmunaaðila að koma að þeirri vinnu.

Stýrihópur um verkefnið starfar undir formennsku ráðherra en þar eiga einnig sæti ferðamálastjóri og formaður og framkvæmdastjóri SAF. Samhliða er starfandi verkefnahópur, sem heldur utan um verkefnið, og er ætlað að kortleggja stöðuna í íslenskri ferðaþjónustu, huga að að umgjörð ferðaþjónustunnar á Íslandi og taka mið af þekkingu og þróun ferðaþjónustu erlendis, einkum þar sem vel hefur tekist til. Verkefnahópnum er ætlað að gera tillögu að stefnu og framtíðarsýn til lengri tíma og aðgerðaráætlun til skemmri tíma.

Mikilvægasti þátturinn í stefnumótunarvinnunni er aðkoma hagsmunaaðila, m.a. fyrirtækja,  starfsmanna í greininni og almennings. Það eru hagsmunir allrar þjóðarinnar að vel takist til og hefur verkefnahópurinn  opnað heimasíðuna, www.ferdamalastefna.is en þar gefst öllum kost á að koma á framfæri  ábendingum og leiðum sem þeir vilja sjá til að bæta og gera íslenska ferðaþjónustu alþjóðlega samkeppnishæfa.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024