Bygg
Bygg

Fréttir

Tilraun til að auka umferðaröryggi á Grindavíkurvegi
Miðvikudagur 15. ágúst 2007 kl. 03:31

Tilraun til að auka umferðaröryggi á Grindavíkurvegi

Vegagerðin hófst í gær handa við að fræsa svokallaðar rifflur í vegakant á 2,5 km kafla á Grindavíkurvegi. Um er að ræða tilraunaverkefni sem verður m.a. á tvöfaldri Reykjanesbraut eftir því sem hún verður tekin í notkun, sem og víðar um land, en markmiðið með þessu verkefni er að fækka umferðarslysum á þjóðvegum landsins.

Fjölmörg dæmi eru þess að ökumenn missi bifreiðar sínar út af vegi, eða yfir á ranga akrein vegna einbeitingarskorts eða jafnvel við það að sofna undir stýri. Þegar ekið er yfir rifflurnar verða ökumenn þess greinilega varir og stýra inn á örugga leið á ný. Þessi aðferð hefur gefið góða raun víða erlendis þar sem hún hefur verið notuð og er þessi útfærsla að sænskri fyrirmynd.

Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að kostnaður við að fræsa rifflur í malbik sé mun ódýrari kostur en t.d. vegrið, eða um 3-5 milljónir á kílómetra.

VF-myndir/Þorgils
















Bílakjarninn
Bílakjarninn