Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Tillaga um verndarsvæði í Þórkötlustaðahverfi
Hópsnes. Mynd af vef Grindavíkurbæjar.
Fimmtudagur 31. janúar 2019 kl. 10:51

Tillaga um verndarsvæði í Þórkötlustaðahverfi

Bæjarstjórn Grindvíkurbæjar samþykkti á fundi sínum þann 30. nóvember 2018 að leggja fram tillögu að verndarsvæði í byggð innan Þórkötlustaðahverfis í Grindavík til mennta- og menningarmálaráðherra.  Tillagan var auglýst í Víkurfréttum í þessari viku.

Svæðið sem um ræðir er um 50 ha að stærð og nær yfir túnastæði Þórkötlustaða eins og áætlað er að það hafi verið stærst.
 
Svæðið er austast innan skilgreinds þéttbýlis Grindavíkurbæjar skv. aðalskipulagi sveitarfélagsins og afmarkast af Austurvegi til norðurs, af túnmörkum og hlöðnum túngörðum við Slokahraun til austurs, strandlengju Þórkötlustaðabótar til suðurs og við Kóngahraun við Þórkötlustaðanes til vesturs.
 
Tillagan fjallar um verndargildi byggðarinnar í hverfinu en ljóst er að menningarminjar í Þórkötlustaðahverfi hafa varðveist vel og í þeim fólgin löng saga svæðisins.
 
Tillagan ásamt viðaukum liggur frammi á bæjarskrifstofu Grindvíkurbæjar, Víkurbraut 62, 240 Grindavík, frá 30. janúar 2019 til og með 13. mars 2019.
 
Íbúafundur verður í Kvikunni þann 13. febrúar 2019 kl. 17:30, þar sem tillagan verður kynnt og íbúum gefinn kostur á að koma með fyrirspurnir og ábendingar. 
 
Public deli
Public deli