Bygg
Bygg

Fréttir

Tillaga að nýju þjónustuhúsi á Reykjanesi
Föstudagur 28. september 2012 kl. 07:05

Tillaga að nýju þjónustuhúsi á Reykjanesi

Ferðamálasamtök Suðurnesja hafa látið gera tillögu að þjónustuhúsi fyrir ferðamenn yst á Reyjanesinu við Valahnúk. Hefur hún verið kynnt skipulagsyfirvöldum í Reyjanesbæ og er verið að kanna hvort gera þurfi skipulagsbreytingu. Frá þessu greinir í nýju fréttabréfi Ferðamálasamtaka Suðurnesja.

Tillagan er unnin af Sigríði Sigþórsdóttur arkitekt en hún hefur hannað m.a. Bláa Lónið og er þessi tillaga hennar mjög í anda þess sem Ferðamálasamtökin vilja.

Tillagan gerir ráð fyrir húsi sem er 115 m2 að stærð og staðsett á klöppunum við Valahnúk eins og sjá má á meðfylgjandi mynd en húsið kallar hún Valan. Helstu sjónlínur eru Reykjanesviti, Valahnúkur, Blasíusbás, Reykjanestá, Eldey og Karlinn.

Húsið fellur mjög vel að umhverfinu, lætur lítið yfir sér og truflar ekki upplifun ferðamanna þegar þeir heimsækja Valahnúk. Uppkomið og fullfrágengið hús á þessum stað kostar um 60-70 milljónir króna, segir í fréttabréfinu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn