Tilkynningum til barnaverndar fjölgar
Í ágúst 2020 bárust 55 tilkynningar til barnaverndarnefndar Reykjanesbæjar vegna 40 barna og fjöldi nýrra mála í könnun voru átján mál.
Á árinu 2020 hefur orðið aukning á barnaverndartilkynningum er varðar vanrækslu, umsjón og eftirlit, áfengis- og/eða fíkniefnaneysla foreldra. Frá janúar til ágúst bárust 132 tilkynningar en á sama tíma árið 2019 voru þær 99.
Á árinu 2020 hefur verið aukning á tilkynningum er varðar heimilisofbeldi, frá janúar til ágúst barst 61 tilkynning en á sama tíma árið 2019 voru þær 44.