Tilkynning frá lögreglu vegna hugsanlegra eldsumbrota
Lögreglan á Suðurnesjum hefur sent frá sér tilkynningu: „Vegna hugsanlegra eldsumbrota á Reykjanesskaga er af öryggisástæðum biðlað til fólks að fylgjast vel með fréttaflutningi um mögulegar takmarkanir á umferð, gangandi og akandi í grennd við Fagradalsfjall. Sérstaklega óskum við eftir því að fólk forðist vegslóða á sama svæði.“