Tilgangslaus skemmdarverk í Sandgerði
Lögreglan í Keflavík vinnur að rannsókn á því hverjir unnu skemmdarverk á listaverkinu Álög í Sandgerði á aðfararnótt mánudags.
Óprúttnir aðilar úðuðu hvítri málningu á listaverkið auk þess sem umferðaskilti og vegvísar á leiðinni frá Reykjanesbæ til Sandgerðis höfðu orðið skemmdarfýsninni að bráð. Þá voru skemmdir unnar á ljóskerjum við listaverkið.
Lögreglan segist hafa ákveðna aðila grunaða um verknaðinn og er enn að vina úr málinu.
Verknaðurinn er háalvarlegur þar sem um er að ræða hrein og klár skemmdarverk, sem varða almenn hegningarlög.
VF-myndir/Þorgils