Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Til skoðunar hvort leggja eigi fasteignagjöld á íbúa Grindavíkur árið 2024
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
miðvikudaginn 22. nóvember 2023 kl. 13:28

Til skoðunar hvort leggja eigi fasteignagjöld á íbúa Grindavíkur árið 2024

Íbúar Grindavíkur hafa mikið spurt um greiðslu fasteignagjalda og hvert framhaldið verður í því sambandi. Á vef Grindavíkurbæjar kom fram að hvað varðar árið 2023, þurfa fasteignaeigendur að greiða síðasta gjalddaga ársins, þ.e. gjalddaga 1. nóvember 2023 sem er síðasta greiðsla í greiðsludreifingu fasteignagjalda fyrir árið 2023.
Í skoðun er útfærsla á fasteignagjöldum fyrir árið 2024. Ljóst er að það hvílir lagaskylda á sveitarfélaginu um að leggja árlega á fasteignaskatt, eins og fram kemur á vef Grindavíkurbæjar.
Hvað varðar önnur fasteignagjöld þá er það í skoðun hvort skuli leggja þau á og þá hversu há fjárhæð það ætti að vera ef þá einhver.
Þessi gjöld eru:
Lóðarleiga
Vatnsgjald
Fráveitugjald
Sorpgjald
Rotþróargjald
Endanleg útfærsla verður klár í janúar 2024 og verður sú útfærsla kynnt á heimasíðu bæjarins.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024