Tíðindalaust hjá lögreglunni
Eftir mikið annríki um helgina og fjölda uppákoma þá var mánudagurinn rólegur á vaktinni hjá lögreglunni í Keflavík, að sögn Pálma Aðalbergssonar, varðstjóra. Ekkert markvert bar til tíðinda.Meðfylgfjandi mynd var tekin af brosandi lögregluþjónum sem fylgdust með knattspyrnuleik í Njarðvík um helgina, þar sem leikar fóru 3-2 fyrir Njarðvík í leik gegn KS.